„Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka.“

Bilanir geta alltaf komið upp en það er á slíkum stundum sem flugfélög eiga að sýna sitt allra besta andlit.. að mati Fararheill allavega.

Bilanir geta alltaf komið upp en það er á slíkum stundum sem flugfélög eiga að sýna sitt allra besta andlit. Að mati Fararheill allavega.

Þá er það loks komið á hreint og tók „aðeins“ sex vikur.

Forráðamenn Primera Air, systurfyrirtækis Heimsferða, hyggjast EKKI koma til móts við þá farþega flugfélagsins sem voru strandaglópar í Tyrklandi seint í júní þegar bilun varð í vél flugfélagsins.

Atvikið sem Fararheill fjallaði um hér fyrir nokkru vakti mikla athygli enda ekki aðeins um tafir og svo aflýsingu flugs að ræða heldur og þjónustu sem var vel undir því sem búast á við hjá fagaðilum í flugþjónustu.

Forstöðumaður þjónustusviðs Primera Air hefur sent nokkrum farþegum þessa flugs svör flugfélagsins við kröfum um bætur vegna tafarinnar sem kostaði ýmsa farþega svita, tár og blóð eftir því sem Fararheill kemst næst.

Svarið er reyndar aldeilis merkilegt því það er heilt bréf þar sem Primera afsakar töfina, laka og misvísandi þjónustu og útskýrir að flugið hafi verið fellt niður vegna bilunar í kallkerfi vélarinnar. En svo klykkir Primera út með að þrátt fyrir allt:

Þetta sérstaka tilfelli er þess eðlis að flugfélagi ber ekki skylda til að greiða bætur samkvæmt EU 261/2004 gr 7, enda sérstakar og ófyrirséðar aðstæður leiða til tafar. Flugfélag skal sjá til þess að farþegi fái næturgistingu og mat með beðið er flugs og við teljum að við það hafi verið staðið.

Þetta er með allra sorglegustu viðbrögðum flugfélags en reyndar er Primera Air alls ekki einir á báti þar því íslensk flugfélög og mörg hver erlend líka hafna reglulega bótakröfum farþega sem lenda í seinkunum eða aflýsingu flugs. Sem er ein ástæða þess að ritstjórn Fararheill kallar reglulega á íslenskar lögfræðistofur að bjóða aðstoð í slíkum tilfellum en án árangurs.

Nú er enginn í ritstjórn lögfræðingur en við kunnum að lesa og leggja saman tvo og tvo sem gerir okkur 90 prósent lögfræðinga. Við vitum líka og höfum fjallað ítrekað um keimlík mál sem flugfélögin TAPA í meirihluta tilfelli fyrir þartilgerðum dómstólum. Það veit líklega forstöðumaður þjónustusviðs Primera Air.

Hér má sjá hvernig Wow Air hefur reynt að hafna bótaábyrgð en án árangurs. Hér má sjá grein um eina fjölskyldu sem gaf sig ekki gagnvart Icelandair en slíkar greinar eru mun fleiri á vef Fararheill.

Rök flugfélaganna í velflestum tilfellum eru það sem kallast „óviðráðanlegar aðstæður“ og flugfélögin halda því fram að alls ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir. Reyndar hefur Icelandair undanfarið beitt nýrri tækni og meira að segja kallað verkföll óviðráðanlegar aðstæður. Segir allt sem segja þarf um ruglið.

Fjölmargir dómar hafa fallið bæði hérlendis hjá Flugmálastjórn og erlendis í Evrópu þar sem skýrt er kveðið á um að bilanir í vélum flokkist EKKI sem „óviðráðanlegar aðstæður.“ Þó orðatiltækið óviðráðanlegar aðstæður sé teygjanlegt út í hið óendanlega skýrði Evrópudómstóllinn þetta ákvæði í þekktu máli árið 2007. Þar sagði dómurinn að tæknileg vandamál í flugvélum félli almennt EKKI undir það sem flokkað er í lögum sem óviðráðanlegar aðstæður. Fleiri dómar þess efnis hafa fallið síðan.

Fyrir þá farþega Primera sem ekki sætta sig við þessi málalok er tvennt í stöðunni og Fararheill mælir sannarlega með að fara með öll málin lengra.  Annars vegar að leggja fram kæru til Flugmálastjórnar sem tekur slík mál til skoðunar frítt og fellir dóma sem flugfélögunum ber að virða. Það tekur yfirleitt nokkra mánuði hið minnsta. Hins vegar er fljótlegra að leita til lögfræðinga erlendis sem sérhæfa sig í slíkum málum. Við höfum til dæmis fjallað um fyrirtækið Refund.me hér á Fararheill. Þeir vinna fljótt en taka prósentur ef mál vinnast. Annars frítt.

Svo er bara að deila þessu á milli. Við neytendur eru eitthvað sterkasta afl í heiminum ef við tökum okkur saman. Hér er svo þurr og leiðinleg reglugerð um réttindi flugfarþega sem verða fyrir seinkun, töf eða aflýsingu flugs ef einhver vill kynna sér nánar.