Eigi Ísland sér tvíburasystur á þessum hnetti er það án mikils efa hið stórkostlega Nýja-Sjáland sem státar að nokkru leyti af keimlíku landslagi, stórbrotnum jöklum, beljandi ám og lítt snortnum víðáttum eins og við hér. Þess utan eru fáir landmassar á jörðinni jafn ungir og þessar eyjur.
Ritstjórn hefur orðið vör við töluverðan áhuga á að heimsækja andfætlingana þó langt sé að fara og það er ástæða þess að við bendum á að nú er hægt að fljúga til Auckland á Norðureyju Nýja-Sjálands frá London niður í 140 þúsund krónur í nóvember sem er 30 til 50 þúsund krónum lægra verð en hefur verið í boði lengi vel.
Leit á flugleit Dohop í nóvember sýnir lægsta verð á flugi frá London til Auckland kringum 170 þúsund krónur svo ljóst má vera að hér er hægt að spara 60 þúsund krónur á par eða hjón.
[content_locker id=’233907301′ name=’loc3′]Það er hin ástralska ferðaskrifstofa Flight Centre sem býður fargjöld niður í 141 þúsund krónur miðað við miðgengi krónu gagnvart pundi þessa stundina. Grípi fólk þá gæs og bæti svo við fargjaldi til London og heim aftur á því verði sem í boði hefur verið hér að undanförnu er því komist til Nýja-Sjálands fyrir rúmar 160 þúsund krónur á mann.
Ekki gleyma í þessu sambandi að þarna hinu megin er að detta í bullandi sumar í nóvember svo enginn þarf að hafa áhyggjur af veðri og vindum.
[/content_locker]







