Þó ekki fari sænskir jólamarkaðir á pall með þeim frægustu í Evrópu þarf ekki mikið að hafa fyrir að komast í hátíðarstemmningu í helstu borgum þar. Sérstaklega er það einfalt í Stokkhólmi.

Dans utandyra kringum jólatré er ekki lítið gaman fyrir smáfólkið. Mynd djurgarden.se

Dans utandyra kringum jólatré er ekki lítið gaman fyrir smáfólkið. Mynd djurgarden.se

Svíar eru engir eftirbátar annarra þegar kemur að því að skapa ljúfa stemmningu fyrir jólin þó svo jólamarkaðir þeirra séu töluvert minni en þeir frægu í Prag eða Vín. En á móti kemur að í Prag eða Vín svífur norrænn andi ekki yfir mörkuðum. Við erum einhvern veginn alltaf pínulítið utangátta þar jafnvel þó við njótum.

Þann anda er auðvelt að taka inn í Skansinum, Skansen, í Stokkhólmi. Þar fer fram einn af þremur jólamörkuðum þeirrar borgar og fyrir marga er hér einhvern veginn „sannari“ stemmning en fæst á hefðbundnari sænskum jólamarkaði á borð við þann sem fram fer í Gamla Stan. Jafnvel þó sá sé eldri en markaðurinn í Skansinum.

Þetta helgast líkast til af því að fyrir þá sem ekki vita er Skansinn eitt stórt safn gamalla bygginga og í þeim mörgum er handverksfólk að smíða, tálga, sauma, sjóða, baka eða selja vörur sínar svona eins og maður heldur að hafi verið gert fyrir margt löngu. Þetta virkar raunverulegt og er ekki bara samansafn vel skreyttra sölubása þar sem hver kaupmaðurinn ofan í annan reynir að pranga einhverju inn á fólk. Í Skansinum er ekkert slíkt áreiti.

Um að gera að prófa þó báða markaði finni fólk sig í Stokkhólmi fyrir jól. Markaðurinn í Gamla Stan (sjá kort) opnar hvert ár 21. nóvember og er opinn fram að aðfangadag. Markaðurinn í Skansen er hins vegar aðeins opinn um helgar í desember. Farðu endilega þegar aðeins er farið að skyggja svo jólaljósin skarti sínu fegursta.