Wow Air heldur áfram að bjóða nýjungar eins og snarlækkað verð til ýmissa áfangastaða sinna og ef marka má að allar auglýstar tilboðsferðir eru uppseldar nú hálfum sólarhring síðar kann landinn vel að meta.
Eitt þúsund sæti voru auglýst til sölu nú í morgun frá 8.985 krónum til Stuttgart og Dusseldorf í Þýskalandi, Amsterdam í Hollandi og Vilníus í Litháen og leit Fararheill nú hálfum sólarhring síðar leiðir í ljós að alls engin sæti finnast á þessu verði til Stuttgart, Dusseldorf og Amsterdam en sæti til Vilníus enn fáanleg á tveimur dagsetningum.
Það gera vænar tuttugu millur í bankann fyrir Wow á þessum tilboðsferðum eingöngu ef við gefum okkur að kaupendur hafi nú flestir keypt far til baka líka en með haustinu hættir flugfélagið að bjóða allar þessar leiðir fram til næsta sumars.
Þó vekur athygli að Vilníus virðist ekki vera á dagskránni sumarið 2015 ef marka má bókunarvef Wow Air.








