Það er víðar en við íslenska hringveginn sem reynt er að okra á ferðafólki. Hjónum á ferð um Róm nýverið brá svo í brún þegar þau sáu reikninginn hjá íssala við Trevi-brunninn að þau kölluðu til lögreglu.
Parið var á göngu við brunninn fræga á brennheitum sumardegi og við slíkar aðstæður er svellkaldur ítalskur gelato hreinasta afbragð. Slíkur ís fæst víða um borgina og algengt verð fyrir einn slíkan 500 til 700 krónur.
Brosið hvarf þó fljótt af vörum þeirra hjóna þegar reikningurinn fyrir heila þrjá ísa reyndist vera 6.475 krónur. Hver og einn ís kostaði litlar 2.158 krónur og hananú.
Eftir ákafar deilur við íssalann hurfu hjónin á brott fúl í bragði. Þau héldu rakleitt á næstu lögreglustöð og lögðu fram kvörtun. Allt kom þó fyrir ekki því stutt rannsókn lögreglu leiddi í ljós að verðið var rétt og auglýst á verðlista staðarins. Það var því klúður hjónanna að skoða ekki verðlistann.
Slíkt okur er æði algengt víða um heim og allra verst í næsta nágrenni við vinsæla áfangastaði eins og Trevi-brunninn.
Reyndar munu ítölsk stjórnvöld vera þau fyrstu sem gripu til sérstakra aðgerða gegn okri á ferðamönnum fyrir þremur árum síðan þegar ítrekaðar fréttir bárust af okri á gelato í Flórens og Pisa. Síðasta sumar var einnig annað okurmál á ís að fréttaefni í Róm þegar fjórir Bretar þurftu að greiða rétt tæpar tíu þúsund krónur fyrir fjóra ísa. Okrið vakti svo mikla hneykslan að borgaryfirvöld í borginni buðu Bretunum umræddu aftur til Rómar í vikuferð og allt greitt.








