Það eru ýmsir að klóra sér í kollinum þessi misserin. Enginn skilur hvers vegna Ibiza á Spáni hefur í vetfangi orðið eitt allra helsta stopp stórstjarna á djamminu.

Kim Kardashian, Kate Moss og Naomi Campbell eru þrjár af stjörnum heimsins sem djammað hafa út í eitt síðustu dagana á Ibiza. Skjáskot af twittervef Kardashian
Ekkert nýtt að það sé gott djammerí á þessari litlu spænsku eyju. Þangað fara jú tugþúsundir ungmenna hvaðanæva að frá Evrópu hvert sumar til að hrista skrokk og hossa hossa svolítið. Og enginn þarf regnfatnað frá 66º Norður.
Ibiza hefur á stundum áður fyrr dregið að sér stöku heimsþekkta einstaklinga en sjaldan svo marga sem nú. Síðustu dægrin hafa þar verið við drykkju og skemmtan fólk á borð við Naomi Campbell, Kate Moss, Kim Kardashian með manni sínum, Puff Daddy, Justin Bieber, Paris Hilton, Orlando Bloom og fleiri minniháttar stjörnur flotið með. Þetta fólk reyndar að partíast með einum af þekktari hönnuðum Givenchy í þetta sinn.
Fyrr í júlímánuði naut Leonardo DiCaprio sólar við strendur Ibiza, Lindsay Lohan eyddi tíma hér og David Guetta rokkaði sem aldrei fyrr. Michael Douglas, Kate Middleton, Keira Knightly, Vanessa Paradis, Siena Miller, Zinedine Zidane, Stephen Dorff, Elle McPherson, Jude Law, Lionel Messi og Rafael Nadal komust líka í blöðin fyrir dúllerí hér um slóðir.
Allt að gerast á nýjan leik virðist vera.







