Í hinni fallegu borg Písa á Ítalíu fullyrða veðurfræðingar að meðalhiti í október sé sautján gráður. Það er æði ljúfur meðalhiti fyrir kulsækinn Íslendinginn. Enn ljúfara þó að til Písa er komist frá Íslandi og heim aftur þennan mánuð undir 30 þúsund krónum á mann.

Fyrsta ástin, ljúf koma vorsins og Ítalía eru þeir þrír hlutir sem koma brosi á varir fúlustu manna að mati Bertrand Russell. Mynd Neil Howard
Nei, við erum ekki að fíflast í ykkur. Með smá lagni og góðu viðbragði getur fólk komist til Písa, Mílanó, Rómar og jafnvel Feneyja í októbermánuði frá Íslandi og heim aftur niður undir 30 kallinn. Það kallar þó á millilendingu í London og tilfærslur milli flugvalla og farangur annar en handfarangur er ekki innifalinn í verðinu.
Það er vefmiðillinn Fly.com sem er að bjóða flug frá Stansted í London í þessum mánuði niður í 38 pund fram og aftur sem gerir heilar 7.400 krónur alls fært yfir á íslenskar krónur miðað við gengi dagsins. Því til viðbótar er Wow Air með nokkur sæti í sama mánuði niður í 10.895 krónur. Nenni fólk að hamra þetta tvennt saman, sem vissulega getur verið meira en að segja, er sannarlega komist til fjögurra ítalskra borga á vægast sagt stórkostlegu verði.
Auðvitað bætist alltaf einhver smá aukakostnaður við slíkar áætlanir eins og gengur en jafnvel þó svo sé er þetta kostaboð sama hvernig á það er litið. Í flestum tilfellunum, en ekki öllum, er flogið með Ryanair sem er ágætt til brúksins ef fólk gerir ekki miklar kröfur um þjónustu.
Hér má finna öll fargjöld Fly til þessara fjögurra indælu borga en hér gildir hið fornkveðna að hafa hraðann á því þau fljúga út ef svo má að orði komast. Gætið bara að því að bóka flug héðan fyrst áður en bókað er áfram. Góða ferð og ekki gleyma að brúka allra bestu hótelbókunarvél heims 😉







