Hversu oft hefur þú lesandi góður orðið fyrir fimm tíma seinkun á stuttu utanlandsflugi? Hafðir þú fyrir því að kvarta yfir þeirri seinkun?
Fararheill hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar ítrekað nauðsyn þess að fólk standi á sínu þegar ferðalög eru annars vegar. Við neytendur eigum skýran og margsannaðan rétt á skaðabótum ef flug tefst alvarlega svo ekki sé talað um ef það fellur niður.
Því miður er neytendavitund landsmanna lítil enda aldrei um slík mál fjallað í íslenskum fjölmiðlum. Við mönum fólk til að leita á mbl.is eða vísi.is þau skipti sem fjallað hefur verið um bætur til handa þeim er lenda illa í seinkunum eða töfum. Þar finnst EKKERT enda flugfélögin stór viðskiptavinur beggja.
En hvað ef við segðum ykkur að erlend fjölskylda sem sætti sig bara alls ekki við að lenda fimm tímum á eftir áætlun í Kaupmannahöfn frá Keflavík fékk greiddar rúmlega 320 þúsund krónur í bætur fyrir það vesen sitt.
Þar var um hjón að ræða með sín þrjú börn sem kröfðust bóta af hálfu Icelandair fyrir fimm klukkustunda seinkun flugs þeirra frá Keflavík í desember 2012. Icelandair sagðist ekki bótaskylt því töfin skýrðist af gölluðum varahlut og væri því ófyrirséð vandamál.
Þó Icelandair hafi ábyggilega tonn af færum lögfræðingum á skrifstofum sínum þá heldur slíkt bull engu vatni þegar fjölmargir dómar hafa fallið í Evrópu um sams konar mál. Ófyrirséður galli er einfaldlega ekki gild rök þegar hundruð farþega þurfa að bíða á flugvelli lon og don með afleiðingum fyrir marga þeirra.
Í takt við slíka dóma sem fallið hafa um alla Evrópu féllst Flugmálastjórn á kröfur farþeganna og reglum samkvæmt fékk hver og einn 400 evrur í bætur. Samtals 2000 evrur eða sem svarar 326 þúsundum króna miðað við miðgengi dagsins. Það munar um minna.








