Túrismi er orðin afar mikilvæg atvinnugrein í velflestum löndum heims og ferðamenn halda stöku löndum beinlínis uppi nú á dögum. Það á því engum að koma á óvart að lagðir eru verulegir fjármunir í alls kyns kynningarefni hvers lands fyrir sig.

Fyrir svona kolklikkað ferðafólk eins og ritstjórn Fararheill samanstendur af nægir stundum eitt einasta myndband eða auglýsing jafnvel til að kveikja þvílíkan neista að ekki fyrr er sýningu lokið en næsta andartak fer að bóka flug og það sem fyrst.

En við erum reyndar dáldítið skrýtin svo það er varla að marka. Allavega kveiktu þessar kynningar duglega á okkur.

http://youtu.be/j5tFXbhEm1I