Fyrir stundu varð ljóst að síðari leikur íslenska landsliðsins í knattspyrnu gegn Króatíu fer fram í Króatíu þann 19. nóvember næstkomandi en sá fyrri verður hér á Íslandi þann 15. sama mánaðar. Ef við gefum okkur að Ísland vinni heimaleikinn 1-0 eða 2-1 má ljóst vera að allmargir vilji taka stökkið til Króatíu og hvetja liðið áfram í síðari leiknum. En það er ekki svo einfalt.

Ólíkt því sem gerðist í lokaleik Íslands í riðlinum gegn Noregi þegar bæði Úrval Útsýn og Icelandair bjuggu í flýti til ferðapakka þangað þegar mikilvægi þess leiks varð ljóst er hætt við að engin slík tilboð berist nú. Til Króatíu er einfaldlega ekki flogið héðan ólíkt Osló og nema stuðningsmenn, KSÍ eða Icelandair ákveði sérstaklega að taka frá eina þotu til að ferja mannskapinn yfir getur verið vandasamt að komast á eigin spýtur.

Vandasamt er kannski fulldjúpt í árina tekið og tímafrekt nær lagi. Ef við skoðum nokkrar flugleitarvélar er Dohop að bjóða besta verð á flugi frá Íslandi alla leið til Zagreb í Króatíu dagana 18. til 20. nóvember en leikurinn fer fram þriðjudagskvöldið 19. eins og áður sagði. Eins og sjá má hér að neðan er ferðalagið í sjálfu sér ekki svo ýkja dýrt en takið eftir tímanum. Það er löng bið á Heathrow og Gatwick bæði út og heim og samtals tekur ferðalagið rétt tæplega sólarhring. Aðrar flugleitarvélar bjóða styttri flug en þau eru mikið dýrari. Þannig finnur Momondo flug fram og aftur sömu daga sem tekur 18 stundir og 30 mínútur en flugið kostar líka 137 þúsund krónur.

kró

Fararheill skoðaði ýmsar aðrar leiðir sem mögulegar eru. Til dæmis finnast flug lággjaldafélagsins Ryanair ekki á flestum flugleitarvélum en þeir fljúga reglulega til þriggja króatískra borga. Enginn þeirra er í grennd við Zagreb en ein nálægt Split fari svo að leikið verði þar en ekki hefur fengist staðfest hvor völlurinn verður fyrir valinu þegar þetta er skrifað. Engin flug finnast nálægt réttum tíma.

Sömuleiðis flýgur Norwegian beint til Zagreb en svo vill til að ekki er í boði flug aftur til Osló dagana eftir leikinn. Þangað er þó komist þann 16. nóvember frá Osló fyrir tæpar 19 þúsund krónur. Þá á eftir að koma sér til Osló. Easyjet flýgur beint til Zagreb frá London og laus sæti með vélum þeirra þann 18. þegar þetta er skrifað fyrir um átta þúsund krónur. Það verður þó að bíða til þess 22. nóvember ætli fólk til baka með þeim frá Króatíu. Heildarverðið er þó æði gott eða um 17 þúsund krónur en það kostar líka eina nótt í London og ferðalagið því í heildina sex dagar sem er helst til mikið.

Besta leiðin að svo komnu máli er líklega að fljúga til Kaupmannahafnar og þaðan með Croatia Airlines til Zagreb umrædda daga. Flug með þeim fæst nú á  rúm 34 þúsund krónur báðar leiðir eins og sjá má að neðan. Þá vantar aðeins að finna ódýrt flug til Köben og þá þarf ekki að eyða heilum sólarhring í bið til að komast á pallana og hvetja íslensku strákana til dáða.

cro