Fararheill velti fyrr í dag fyrir lesendum möguleikana á að komast til Króatíu í nóvember hefði fólk hug á að sjá síðari úrslitaleikinn milli Króatíu og Íslands um sæti á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Brasilíu. Það var ekki sáraeinfalt mál en nú er komið í ljós að Icelandair mun bjóða hópferðir á leikinn.
Frá þessu greindi síðla dags og verða tvenns konar ferðir í boði. Annars vegar að ferðast með landsliðinu og gista þrjár nætur í Zagreb ellegar fara samdægurs og fljúga heim strax að leik loknum. Ekki liggur fyrir hver kostnaður verður en það verður auglýst innan tíðar.
Þetta er þjóðráð í alla staði en líklega ágætt fyrir menn að fá leyfi hjá betri helmingnum strax því gera má ráð fyrir að fleiri hundruð hafi áhuga á slíkri ferð ef fyrri leikurinn hér heima endar á jákvæðum nótum fyrir okkar menn. Það verður því líklega bitist um sæti á seinni leikinn.
Ritstjórn Fararheill er yfirmáta bjartsýn og við erum þegar farin að rúlla út vegvísum til þeirra borga sem Ísland mun líklega keppa í á heimsmeistaramótinu. Þar kemur til dæmis Curitiba til greina.








