Það er ekki venjan hjá íslenskum ferðaskrifstofum að auglýsa sumarferðir sínar með ýkja löngum fyrirvara. Þvert á móti hafa þær flestar verið svo aftarlega á merinni í þeim efnum að leitun er að öðru eins. Það var því með undrun sem Fararheill las auglýsingu frá Heimsferðum snemma morguns 21. október þar sem auglýstar voru flugferðir til Alicante sumarið 2014.

Betur má ef duga skal hjá Heimsferðum

Betur má ef duga skal hjá Heimsferðum

Þetta er til eftirbreytni enda gefur það þeim er kjósa að skipuleggja ferðalög með góðum fyrirvara til að njóta allra bestu kjara tækifæri til þess.

Það er hins vegar miður að okkar mati að auglýsta allra lægsta verð, frá 23.900 krónum, og finna svo að einungis klukkustund síðar er engin ferð á því verði nema farið sé í næstu viku. En auglýsingin var ekki um ferðir í næstu viku heldur á næsta sumri.

Við flettum aftur síðdegis og á vinsælum dagsetningum, það er að segja júní, júlí og ágúst þegar Íslendingar eiga frí og geta ferðast með góðu móti, er algengt verð komið vel yfir 30 þúsund krónur þó enn megi finna ferðir á stöku dagsetningum á 25.900 krónur

Fargjöldin sem auglýst voru frá 23.900 eru því til en bara ekki þegar okkur langar mest að ferðast til Spánar. Og það er stór munur á því að bjóða elskunni með til Alicante  fyrir 48 þúsund krónur eða vel rúmlega 60 þúsund krónur.

Eitt er þó Heimsferðum í hag hér og það er sú staðreynd að 20 kíló af farangri flýgur með án þess að greiða þurfi aukalega fyrir. Ennþá má því fljúga til Alicante á lægra verði en Wow Air býður til sama staðar ef farangur er með í för.

Allt sem þig langar að vita um Alicante hér.