Halda mætti að Iceland Express hafi aftur tekið til starfa séu tölur Flugmálastjórnar yfir kvartanir farþega þetta árið skoðaðar. Þar á Wow Air hlut að máli í langflestum tilvikum líkt og raunin var með flugfélag Pálma Haraldssonar hér áður.

Wow Air gert að greiða skaðabætur þrátt fyrir mótmæli.

Wow Air gert að greiða skaðabætur þrátt fyrir mótmæli.

Fararheill hefur aftur og ítrekað bent flugfarþegum á að okkar réttur gagnvart flugfélögum bjáti eitthvað á er mjög sterkur enda byggður á Evrópureglum. Má nánast slá föstu að bótaréttur verður til um leið og alvarlegar tafir eða seinkanir verða á flugferðum enda vinna kærendur langstærstan hluta mála sem kærð eru.

Það er líka raunin í þeim níu kærum sem Flugmálastjórn hefur borist vegna Wow Air þetta árið og tekið afstöðu til. Í öllum tilvikum er flugfélaginu gert að greiða bætur þrátt fyrir mótmæli Wow Air í öllum tilfellum. Hver og einn kæranda 400 evrum ríkari eða sem nemur rúmlega 62 þúsund krónum miðað við miðgengi dagsins.

Að okkar mati segir það ótrúlega mikið um fyrirtæki hvernig þau tækla vandamál á borð við kvartanir viðskiptavina sinna. Sérstaklega þegar viðurlögin geta skipt nokkrum upphæðum fyrir fyrirtækið.

Langflest málanna gegn Wow Air snúast um einn dag í ágúst í fyrra þegar óvarkárni flugvallarstarfsmanna varð til þess að seinka einni brottför sem hafði í för með sér keðjuverkun.  Þann 16. ágúst töfðust því allar vélar Wow Air umtalsvert og tafirnar allt að tólf klukkustundum í verstu tilfellunum.

Í fyrstu virðist ósköp eðlilegt að Wow Air neiti að greiða farþegum bætur vegna mikilla tafa enda orsakanna að leita til óhapps sem enginn gat séð fyrir og fyrirtækið gaf farþegunum matarmiða og sendi á hótel í einhverjum tilfellum eins og reglur kveða á um.

En kynni fólk sér dóma sem fallið hafa síðustu ár og áratugi bæði í Evrópu og hér á landi er morgunljóst að slíkt óhapp er skaðabótaskylt enda um starfsfólk Wow Air að ræða sem töfunum olli. Reglur um skaðabótaskyldu eru túlkaðar mjög þröngt og farþegar njóta ávallt vafans. Það vita allir lögfræðingar Wow Air en samt reynir fyrirtækið að komast hjá því að greiða þeim sem kærðu eins og sjá má hér og hér og hér og hér og hér og svo framvegis.

Verst er kannski að sökum þess hve neytendavitund Íslendinga er lítil og löskuð er ljóst að aðeins lítið brot þeirra sem urðu fyrir þessum miklu töfum í ágúst í fyrra labba inn í sólarlagið með 60 þúsund krónur í vasanum. Allir hinir eru engu nær.