Þau eru allnokkur flugfélögin í heiminum sem stæra sig af mikilli og góðri stundvísi. Það í sjálfu sér vekur furðu vegna þess að stundvísi er sjálfsagður hlutur og ætti í eðlilegu þjóðfélagi ekki að vera eitthvað til að monta sig af. En þess utan segja stundvísitölur oft bara hálfa söguna.

Það kemur kannski á óvart en þegar tafir verða á flugi eru þær skemmri hjá Icelandair.

Það kemur kannski á óvart en þegar tafir verða á flugi eru þær skemmri hjá Icelandair.

Það er aldrei gaman að lenda í töfum á ferðalögum. Slíkt getur í verstu tilfellum sett stórt og ljótt strik í áætlanir og jafnvel kostað fúlgur fjár ef um tengiflug er að ræða. Fyrir utan auðvitað að flugvellir eru almennt einhverjir leiðinlegustu staðir á jarðríki og lífið er of stutt fyrir dvöl á leiðinlegum stöðum.

Bæði íslensku flugfélögin, Wow Air og Icelandair, standa sig almennt mjög bærilega hvað stundvísi varðar. Heilt yfir eru vélar beggja á tíma í 80 til 90% tilvika sem er í alþjóðlegum samanburði gott. Í raun væri annað mjög merkilegt því þau íslensku eru, með stöku undantekningum, að fljúga mjög stuttar vegalengdir og til og frá flugvöllum sem ekki eru með þeim verstu hvað traffík varðar ef Heathrow og Frankfurt eru undanskildir. Þá gleymist oft að samkvæmt reglum eru vélar sem fara í loftið eða lenda fjórtán mínútum of seint stundvísar samkvæmt Evrópureglum. Það er sem sagt fimmtán mínútna gluggi sem flugfélög hafa til að vera „stundvís“ sem er stórmerkilegt sé mið tekið af merkingu stundvísi í orðabók. Enginn mætir fimmtán mínútum of seint í vinnuna og stendur fast á að hafa verið stundvís. Sá þarf fljótt að fara að leita að öðru.

Wow Air mælist jafnan með betri stundvísi frá Keflavíkurflugvelli en samkeppnisaðilinn Icelandair upp á síðkastið og Wow Air auglýsir þessa staðreynd grimmt. Það er nokkuð ósanngjarnt því þeir fljúga mun færri ferðir, mun styttri vegalengdir og nota oftast litla og þægilega flugvelli.

En þó vélar Wow Air séu oftar „á tíma“ samkvæmt stöðlum þá kemur kannski ýmislegt á óvart að séu skoðaðar tölur frá stærri flugvöllum eins og Gatwick og Kastrup þangað sem bæði flugfélög fljúga. Í ljós kemur að í þau skipti sem tafir verða þá er þær minni hjá Icelandair en Wow Air. Meðaltöfin hjá Icelandair í Gatwick bæði við lendingu og brottför var 8.11 mínútur árið 2013 en 8.92 hjá Wow Air eins og sjá má hér. Meðaltöf Wow Air frá Kastrup í desember 2013 var 43 mínútur en 41 mínúta hjá Icelandair. Meðaltöf Wow Air við lendingu á sama velli í sama mánuði var 59 mínútur en Icelandair „aðeins“ 45 mínútur eins og sjá má hér. Við tökum desember sem dæmi þar sem það er síðasti mánuður sem opinberar tölur eru til um þegar þetta er skrifað.

Þennan mun er að okkar mati mun eðlilegra að skoða hvað okkur ferðalanga varðar. Flugvellir og flugþjónusta eru flókin fyrirbæri og afskaplega lítið þarf til að setja allt úr skorðum. Örfáar mínútur til eða frá skipta fæst okkar máli. En hver kemur okkur á áfangastað með MINNI töfum þegar og ef þær verða. Allavega í þessum tveimur tilvikum er Icelandair að standa sig betur.