Ekki er allt gegnrotið í Danaveldi. Þaðan er hægt að fljúga eins og vindurinn til hinnar fallegu grísku eyjar Korfu og dvelja í tvær vikur í næsta mánuði fyrir algjört ruglverð.

Páskadagur og þrettán dagar til undir grískri sól á Korfu fyrir slikk. Mynd anybookers

Páskadagur og þrettán dagar til undir grískri sól á Korfu fyrir slikk. Mynd anybookers

Með ruglverði erum við að meina tvær vikur á þriggja stjörnu sæmilegu hóteli með morgunverði fyrir tæpar 35 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Og nei, við erum ekki að grínast. Hér er raunverulega um tveggja vikna sólarferð að ræða og að hluta til yfir páskahátíðina með flugi og gistingu.

Flogið er frá Billund í Danmörku áleiðis til Korfu þann 19. apríl og þar dvalið til 3. maí í sæmilegu yfirlæti en Korfu er ein hinna heillandi grísku eyja sem hver maður verður að njóta minnst einu sinni um ævina.

Við reyndar þurfum að koma okkur og hafurstaski til Billund til að grípa þessa gæs. Það skapar kostnað og fyrirhöfn en þetta verð er kannski þess virði fyrir þá sem þrá sólina heitt og innilega eftir misjafnan veturinn.

Hægt er að komast beint til Billund með Primera Air þegar þetta er skrifað þann 17. apríl fyrir 28 þúsund á mann en annaðhvort verður að fljúga heim aftur með Icelandair fyrir 30 til 40 þúsund eða láta sig hafa keyrslu til Köben á bakaleiðinni. Reyndar óvitlaust að eyða tíma í Kaupmannahöfn á heimleiðinni en það er oggupons vesen. Það eru jú rúmir 200 kílómetrar á milli en þá er líka heim komist kringum 15 til 20 þúsund.

Nenni fólk því gæti þessi tveggja vikna ljúfi vorpakki á Korfu kostað alls kringum 170 þúsund krónur fyrir tvo eða 85 þúsund á manninn. Það er samt skrambi gott verð til Grikklands. Allt um málið hér.