Detta nú allar dauðans lýs. Bæði Icelandair og SAS bjóða nú lægra verð á flugi frá Keflavík til Kastrup í sumar heldur en lággjaldaflugfélagið Wow Air samkvæmt úttekt Fararheill.

Hér þurfa einhverjir að girða sig í brók...

Hér þurfa einhverjir að girða sig í brók…

Jæja, ekki allar dauðar lýs því þetta er ekki einstakt fyrirbæri. Wow Air er æði oft að heimta meira fyrir flug en þessi hefðbundnu flugfélög eins og kannanir okkar hafa sýnt. Lesa má um það hér og hér og hér og hér svo örfá dæmi séu tekin.

Kannski Skúli hafi tekið augun af boltanum til að græja Bandaríkja- og Kanadaferðir og ekki veitt því athygli að tveir eldgamlir hundar í bransanum eru nú að sýna Wow Air hvar Davíð keypti danska ölið á vinsælasta áfangastað Íslendinga: Köben.

Lægsta verð hjá Wow Air í júní, júlí og ágúst aðra leið út til Kaupmannahafnar kostar 16.998 krónur. Það eins og alltaf án farangurs. Ef við tökum hreinskilnina á þetta, því við tökum flest tösku með til útlanda, og hendum einni tösku með þá kostar lægsta fargjald Wow Air aðra leið út á mann 20.997 krónur.

Icelandair aftur á móti er að bjóða þessa sömu ferð, með þessum venjulegum töskuheimildum, niður í 15.855 krónur á allnokkrum dagsetningum júní og júlí og niður í 17.355 krónur í ágúst.

Ekki nóg með það. Skandinavíska flugfélagið SAS mun hefja beint áætlunarflug milli Keflavíkur og Kastrup í Köben með vorinu. Þar líka er handfarangur plús taska innifalin í verðinu og í júnímánuði finnst fargjald með SAS niður í 18.985 krónur.

Ekki aðeins er því Icelandair að bjóða lægra verð en Wow Air heldur og bæði SAS og Icelandair að bjóða betur með farangur meðferðis. Vægast sagt hörmuleg niðurstaða hjá lággjaldaflugfélagi.