Ferðaskrifstofan Heimsferðir gerir heldur lítið úr að þar eru í boði flugferðir eingöngu og ekki aðeins pakkaferðir á suðrænar slóðir. Sú býður til dæmist flug fram og aftur til Alicante á Spáni og úttekt Fararheill leiðir í ljós að ferðaskrifstofan er að bjóða þar töluvert betur en „lággjaldaflugfélagið“ Wow Air.

Wow Air dýrast í beinu flugi til Alicante næsta sumar. Mynd Aero Icarus

Wow Air dýrast í beinu flugi til Alicante næsta sumar. Mynd Aero Icarus

Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi töflu en þar er tekið verð á flugi aðra leiðina til Alicante á nokkrum dagsetningum af handahófi í júní, júlí og ágúst eða þegar landinn er mest spenntur fyrir Spánarsól á kropp. Taflan segir þó aðeins hálfa söguna því verðmunurinn er mun meiri þegar tekið er tillit til að í fargjöldum Wow Air er farangur ekki innifalinn og hver taska kostar manninn 3.495 krónur að lágmarki. 20 kílóa taska fylgir með í fargjaldi Heimsferða.

Þar sem fáir leggja leið sína á sólarströnd án þess að pakka nærum, tannbursta og sundfötum að minnsta kosti er munurinn Heimsferðum mjög í hag. Sama gildir reyndar um heimflug líka. Þar er ferðaskrifstofan að bjóða betur líka í mörgum tilfellum miðað við bókunarstöðuna þennan daginn.

Fararheill greindi líka frá því fyrir skemmstu að lággjaldaflugfélagið væri hvað dýrast að fljúga með til Barcelóna á Spáni næsta sumarið. Kemur kannski einhverjum á óvart sem lesið hafa hefðbundna fjölmiðla að undanförnu.

* Samanburður gerður kl 13 þriðjudaginn 14. janúar 2014. Hafa skal í huga að verðbreytingar eru örar bæði hjá flugfélaginu og ferðaskrifstofunni.