Ný hraðtilboð Icelandair hafa séð dagsins ljós og hefur fólk þar um sjö áfangastaði að velja á lægra verði en gengur og gerist. Menn gæta sín þó vandlega að bjóða engin tilboð yfir páska.

Ný hraðtilboð í boði næstu 24 stundirnar

Ný hraðtilboð í boði næstu 24 stundirnar

Um er að ræða flug aðra leið eða fram og aftur til Kaupmannahafnar, London, Helsinki og Glasgow frá 14.900, til München frá 16.900 og til Denver og Seattle í Bandaríkjunum fyrir 36.900 krónur aðra leið.

Tímaramminn til flugs er frá janúar fram til 15. apríl og smellpassar við að fólk nær ekki að nýta tilboðin til að fara ódýrt út um páskana.