Seinni hluti vetrar er jafnan sá tími þegar flestir sem á dimmum norðurslóðum búa vilja gjarnan komast í upplyftingu á heitari slóðum og þá eru siglingar ofarlega á blaði. Nú er hægt að tryggja sér slíka ferð með vænum afslætti.
Eins og Fararheill hefur áður sagt frá eru allmörg ferðaþjónustufyrirtæki vestanhafs sem sérhæfa sig í að leita uppi og ná fram sérstökum afsláttarkjörum á völdum siglingum skemmtiferðaskipa.
Fyrirtækið Vacations to Go er eitt þeirra og eins og sjá má á vef þeirra hér er þessa stundina er hægt að verða sér úti um fínustu ferðir næstu mánuðina frá Fort Lauderdale, Miami og fleiri stöðum á umtalsverðum afslætti frá listaverði.
Hér er vitaskuld aðeins um siglingar að ræða og fólk verður sjálft að koma sér til Flórída og í einhverjum tilfellum að greiða aukalega skatta og gjöld en þegar um er að ræða allt að helmings afslátt eða meira af listaverði breytir það ekki því að tilboðin eru vænleg.
Fararheill veit af fólki hérlendis sem notað hefur þjónustu Vacations to Go vandræðalaust en sem fyrr er aðeins um ábendingu að ræða af okkar hálfu og ábyrgðin alfarið kaupenda.








