Lággjaldaflugfélagið Wow Air býður í raun aðeins lægra verð á flugi til Washington en Icelandair einn mánuð af þremur í sumar sé sami farangur tekinn með og leyft er hjá því síðarnefnda.

Ósköp svipað verð á flugi með Icelandir og Wow Air til Washington í sumar. Mynd Robert Pos
Icelandair leyfir farþegum á sardínufarrými, economy, að taka tvær innritaðar töskur með í flug vestur um haf og má hvor um sig vera allt að 23 kílóum. Greiða þarf aukalega fyrir slíkt hjá Wow Air eins og kunnugt er og grípi fólk tvær töskur með þar bætast 9.998 krónur ofan á fargjaldið. Jafnvel þá er farangursheimild Icelandair sex kílóum meiri svo sé hugmyndin að versla, eins og hver einasti Íslendingur gerir í Bandaríkjunum, munar um það líka.
Sé það svo borið saman og leitað að lægsta verði á flugi aðra leið í júní, júlí og ágúst er Wow Air aðeins að bjóða betur í júnímánuði eins og sést á meðfylgjandi töflu. Í júlí er verðið keimlíkt og í ágúst kostar örlítið minna að fljúga með Icelandair.*
*Úttekt gerð samtímis á báðum vefum flugfélaganna kl. 17.00 þann 10. maí 2015. Leitað að lægsta verði á flugi hvern mánuð fyrir sig aðra leiðina út og tveimur innrituðum töskum bætt við fargjald Wow Air. Hafa skal í huga að verð breytast ört hjá báðum aðilum.
Sé fólk áhugasamt að skoða Washington og kynnast þessari höfuðborg Bandaríkjanna í þaula er óvitlaust að skoða hótelbókunarvef okkar hér að neðan. Við fundum fjögurra stjörnu gistingu þar niður í 4.101 krónu þar í sumar en algengt verð á sæmilegri gistingu þó meira í takt við fimmtán þúsund krónur per nótt.








