G óðu heilli er ávallt nokkur hópur fólks sem árlega hendir bakpokanum á öxl og heldur á vit ævintýra á allra ódýrasta máta erlendis. Þá er oftar en ekki gist á gistiheimilum eða hostelum og oftar en ekki í kojum með mörgum ókunnugum í herbergi. En hversu ódýr er slík gisting í raun?

Alveg hægt að framlengja ferðalögin út í hið óendanlega þegar gisting fæst á rúmar þrjú þúsund krónur.
Það er sáraeinfalt að komast að því sökum þess að stórir aðilar í bransanum eru duglegir að taka saman tölfræði sem hjálpað getur áhugasömum að ákveða sig.
Hostelworld er einn þeirra aðila og sá miðill birti nýlega lista sinn yfir meðalkostnað per nótt á hostelum í heimsins álfum. Þeir ættu að vita í sinn haus því fyrirtækið er bara með 30 þúsund hostel á skrá.
Eins og sést á meðfylgjandi mynd er ekki mikill munur á nótt milli heimsálfa. Í Evrópu er meðalkostnaður á nótt að sumartíma 3.190 krónur. Vestanhafs þarf að greiða rétt rúmar 3.400 krónur fyrir kojuna en aðeins 2.700 á nótt í Asíu og Eyjaálfu. Ódýrast er að halla höfði í Suður Ameríku en meðalkostnaður þar er aðeins 2.400 krónur.
Það segir sig sjálft að lengja má duglega í ferðum þar sem gist er með þessum hætti þó auðvitað sumum hrylli við að sofa nótt eftir nótt í misjöfnum kojum með misjöfnu ókunnugu fólki.
Það er þó reynsla ritstjórnar Fararheill að slíkt er í undantekningartilfellum skemmtileg lífsreynsla og mun líflegra en að dvelja á hóteli.
* miðað við miðgengi 28. nóvember 2015.







