Sé þrá eftir sól í hjartanu og þörf á fötum til skiptanna kann að vera betri hugmynd að kaupa flug gegnum ferðaskrifstofuna Úrval Útsýn til Mallorca en með „lággjaldaflugfélaginu“ Wow Air til Barcelóna.

Merkilegt en staðreynd engu að síður. Leiguflug á lægra verði en áætlunarflug. Samsett mynd
Leit á vef Wow Air til Barcelóna og heim aftur í júní, júlí eða ágúst á þessari stundu sýnir að greiða verður hátt í 53 þúsund krónur að lágmarki fyrir þann pakka. Oftar er þó fargjaldið hærra en það. Það auðvitað verð á einstakling án farangurs en ein taska í ofanálag báðar leiðir bætir tæpum tíu þúsund krónum ofan á það verð. Samtals flug fram og aftur því að lágmarki 63 þúsund.
Berum það saman við flugferðir til Mallorca og heim aftur gegnum Úrval Útsýn. Það reyndar annar áfangastaður og ferðir ekki jafn örar en á móti kemur að fargjald báðar leiðir með tösku kostar 56 þúsund og meira að segja létt máltíð innifalin. Verð reyndar hækkar um þúsund krónur á haus hjá Úrval Útsýn um miðjan júlí. Það breytir ekki því að um töluvert lægra verð er að ræða.
Einhver gæti fussað og sveiað yfir svona samanburði. Mallorca er ekki Barcelóna og þarna verið að bera saman epli og kiwi. Kannski það en ef þetta snýst aðeins um sól á kropp fyrir sem lægst verð er þetta epli og epli.
[alert type=success]Þessu tengt er ágætt að muna að ferjur fara daglega milli Mallorca og Barcelóna. Sá túr tekur rúmar sex klukkustundir en er kjörin leið til að dvelja um stund á Mallorca og eyða svo kannski tíma á meginlandinu líka.[/alert]






