Ráð er kannski núna fyrir hina trúuðu, og í tilfellum fyrir hina vantrúuðu, að drífa sig að bóka miða til Torínó á Ítalíu. Þar eru hin frægu líkklæði Jesú Krists aftur komin á sýningarbás en aðeins í skamman tíma.

Sé þetta raunverulega líkklæði Krists verður ekki nær honum komist í lifandi lífi. Opinber mynd

Sé þetta raunverulega líkklæði Krists verður ekki nær honum komist í lifandi lífi. Opinber mynd

Leyfið börnunum að koma til mín á Kristur að hafa sagt en að þessu sinni verða bæði börn og fullorðnir að gera boð á undan sér. Það helgast af mikilli aðsókn sem sóknarnefnd dómkirkjunnar í Torínó, Duomo di Torino, væntir nú þegar líkklæðin má nú berja augum á nýjan leik en þau hafa verið varðveitt og rannsökuð af kirkjunnar mönnum síðan 2010 þegar almenningi gafst síðast tækifæri til skoðunar.

Þó töluverðar rannsóknir hafi farið fram á klæðunum þykir alls ekki sannað að í þeim hafi Kristur verið borinn til grafar og verður líklega aldrei sannað. En sannanir hafa kristnir menn svo sem aldrei þurft á að halda.

Klæðin verða til sýnis til 24. júní, aðgangur er frír en bóka þarf heimsókn með fyrirvara og það löngum. Ein milljón manns þegar á heimsóknarlista. Nánar hér.