Þú hefur fram að 21. apríl til að tryggja þér flug fram og aftur til Oslóar með töskum og alles fyrir rétt rúmar 25 þúsund krónur og það fram á næsta ár.

Fínasta tilboð ef ferðinni er heitið til Osló á þessu ári.
Flugfélagið SAS er með sértilboð á nokkrum flugleiðum sínum fram til þess tíma en tilboðsfargjöld gilda frá maímánuði og allt fram til febrúar á næsta ári. Fram og aftur til Osló fyrir rúman 25 kall með tösku er skrambi gott verð og þó hægt sé að finna lægri fargjöld með Norwegian sömu leiðir jafnast það út þegar farangur er tekinn með í reikninginn.
Þetta er hins vegar tíu þúsund krónum lægra verð en það besta sem Icelandair býður okkur til Osló og heim aftur út þetta ár samkvæmt athugun Fararheill á bókunarvef þess flugfélags. Það ekki lítill munur og mjög stór ef fjölskyldan er að ferðast saman.







