Góðu heilli er ekkert íslenskt flugfélag að bjóða flug til Miami á Flórída. Þar hafa flugvallaryfirvöld undrast miklar kvartanir farþega undanfarin ár og loks nú komist að því að yfir 30 starfsmenn hafa stundað lengi að stela úr töskum flugfarþega.

Lágmark að læsa töskum og helst taka aukatryggingar líka.
Enginn flugvallarstjóri vill að það fréttist að starfsmenn hans á gólfinu geri sér að leik að stela verðmætum úr innrituðum farangri. Það er þó sennilega nokkuð algengt. Bæði eru fréttir af því nokkuð algengar víða um heim en ekki síður er óhætt að margfalda þann fjölda því blaða- og fréttamenn renna ekki á lyktina í öllum tilfellum. Slíkar upplýsingar liggja nú gjarnan ekki á lausu.
Dæmin mýmörg en frægast sennilega þegar yfir 80 starfsmenn Alitalia voru fundnir sekir um stuld úr farangri ferðalanga og það um næstum tíu ára skeið fyrir fáum árum. Árið 2012 tilkynnti TSA, sú bandaríska stofnun sem sér um öryggi flugfarþega, að yfir 400 starfsmenn þess hefðu verið reknir og kærðir fyrir stuld frá farþegum. Slíkar upplýsingar síðan þá ófáanlegar.
Þó alltaf séu skemmd epli í öllum starfsstéttum má líklega að einhverju leyti kenna lágum launum um stuld starfsmanna flugvalla. Það starf er ekki mjög auðvelt, vinnutíminn langur og á vesturlöndum velflestir á strípuðum lágmarks verkamannataxta. Kjöraðstæður fyrir önnur meðul en þau hefðbundnu.







