Gefðu þér góðan tíma í New York. Verð frá 30.000 krónum.

Frábært tilboð. Eða hvað? Skjáskot
Heimur versnandi fer. Ekki nóg með að forstjóri Icelandair Group, fyrirtækis að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, sé alfarið á móti bættum launakjörum fólks sem greiðir í sömu lífeyrissjóði heldur og bætir hann um betur og beitir sama fólk blekkingum í ofanálag.
Dæmi um þetta má sjá á vef Icelandair en þar er fólk hvatt til að njóta lífsins í New York. Fyrir sléttar 30 þúsund krónur. Sem er afbragðsverð. Það væntanlega báðar leiðir eða hvað?
Ef bara það væri satt.
Sem er ekki reyndin. Lægsta verð á bókunarvef Icelandair aðra leiðina til New York er 30.375 krónur samkvæmt úttekt Fararheill um miðjan dag þann 20. apríl. Gott og vel. Það ekki slæmt verð aðra leiðina en sannarlega ekki sléttar 30 þúsund krónur.
Það er bara ein leið til að finna þetta auglýsta fargjald, sem er aðeins aðra leiðina þó ekki sé það tekið fram og geti misskilist. Það er ef keypt er flug bæði fram og aftur. Þá er möguleiki að fá annað flugið niður í 30 þúsund krónur. Reyndar gott betur því við finnum flug til baka til Keflavíkur frá New York í haust niður í 26.760 krónur.
Gallinn bara að með þeim hætti kostar það hátt í 60 þúsund krónur að „njóta lífsins í New York“ en ekki 30 þúsund eins og gefið er í skyn. Engin tilviljun að slíkar auglýsingar eru ólöglegar í mörgum löndum Evrópu þar sem verið er að gæta hagsmuna almennings. Það vantar dálítið hér á klakanum.







