Einkennilega lítið hefur breyst á rúmum mánuði síðan Fararheill framkvæmdi síðustu verðkönnun sína á flugfargjöldum til Alicante í sumar. Enn er nokkuð stál í stál hjá þeim tveimur flugfélögum sem þangað bjóða beinar ferðir.

Merkilega litlar breytingar milli mánaða á flugi til Alicante

Merkilega litlar breytingar milli mánaða á flugi til Alicante

Við gerðum leit í júní, júlí og ágúst að allra lægstu fargjöldum beggja flugfélaga til Alicante á Spáni og sjá má af grafinu hér að neðan niðurstöður þess. Merkilega lítið hefur breyst síðan við framkvæmdum sams konar könnun um miðjan febrúar sem sjá má hér.

Wow Air býður töluvert lægra verð í júní eins og fyrir mánuði en Primera Air jafnar það í júlí með lægra fargjaldi. Primera er svo aðeins að bjóða betur í ágústmánuði.

Í öllum tilvikum er miðað við verð með bókunargjaldi og einni tösku aðra leiðina út. Sem fyrr skal hafa í huga að fargjöld breytast jafnan oft og hratt þó vissulega veki athygli hversu litlar breytingar eru á allra lægsta fargjaldi milli mánaða.