Full ástæða er til að búast við miklum og langvinnum töfum og vandræðagangi á nokkrum helstu flugvöllum Þýskalands á morgun fimmtudag sökum verkfalla hjá flugvallarstarfsmönnum.
Þýskir miðlar greina frá því að strax í nótt leggi stór hluti starfsmanna stórra flugvalla á borð við Frankfurt, München, Hamborgar og Stuttgart niður vinnu tímabundið. Á því ekki að ljúka fyrr en í fyrsta lagi klukkan 14 síðdegis.
Þetta þýðir að ef flug er ekki hreint og beint fellt niður gætu flugfarþegar á þessum flugvöllum lent í verulegri bið og leiðindum hvort sem er að komast inn eða út en ekki síður til að nálgast farangur sinn. Jafnvel löngu eftir að verkfallinu lýkur gætu vandamál sett strik í reikning því það tekur tímann sinn á risaflugvöllum að koma öllu í samt horf eftir stutt verkfall.








