Enn er hægt að finna flug til Alicante næsta sumarið á viðráðanlegu verði samkvæmt úttekt Fararheill og ekki fæst betur séð en Wow Air hafi beinlínis lækkað verð á stöku brottförum þangað milli mánaða.

Primera Air og Wow Air skipta Alicante kökunni á milli sín.

Primera Air og Wow Air skipta Alicante kökunni á milli sín.

Aðeins tveir aðilar selflytja ferðafólk þráðbeint milli Keflavíkur og Alicante á Spáni. Annars vegar Wow Air og hins vegar flugfélagið Primera Air sem alls ekki finnst á vef flugleitarvélarinnar Dohop. Primera er þó að bjóða betur aðra leiðina út en Wow í júlí og ágúst eins og sést á meðfylgjandi töflu.

Þar er fundið lægsta verð í boði á vefum beggja félaga aðra leiðina með ÖLLUM sköttum og gjöldum og einni 20 kílóa tösku í þokkabót. Hafa skal í huga að verð breytast ört en voru rétt klukkan 11:30 þann 19. febrúar 2014.

Primera gult og Wow bleikt í töflunni hér að neðan.