Þú finnur frábært verð á flugi næsta september sem þig dauðlangar að kaupa en ert ekki alveg viss um hvort þú komist akkurat þann dag. Hvað er til ráða?

Frábær ný þjónusta í boði sem gæti valdið straumhvörfum þegar fram í sækir.

Frábær ný þjónusta í boði sem gæti valdið straumhvörfum þegar fram í sækir.

Til ráða er að bóka flugið á hinu frábæra verði gegnum þjónustu sem heitir Options Away. Sá aðili leyfir þér gegn vægu gjaldi að frysta verð á flugi langt fram í tímann með sama hætti og gerist á hlutabréfamörkuðum. Þá pantar þú umrætt flug, greiðir uppsett gjald fyrir frystinguna og gjaldið fer eftir hversu lengi þú vilt eiga bókun án þess að greiða fyrir flugið.

Á mannamáli merkir þetta að frystir þú miða í viku og verðið hækki í millitíðinni kaupir þú miðann engu að síður á upprunalegu verði plús það gjald sem tekið er fyrir af hálfu Options Away. Ef svo vill til að verð á flugmiðanum lækki þá hættir þú bara við, greiðir uppsett frystingargjaldið og kaupir þá flugfarið á hinu lága verði. Allir vinna ef svo má að orði komast.

Þetta er ekki glænýtt fyrirkomulag. Allnokkur flugfélög gefa fólki kost á að frysta flugmiða með þessum hætti en aðeins í sólarhring eða svo og aðeins hjá viðkomandi flugfélagi.

Að mati ritstjórnar Fararheill er þetta sérdeilis frábær hugmynd því velflest höfum við lent í því að finna frábært verð á flugi en þurft nokkra daga eða jafnvel vikur til að púsla hlutunum saman svo allir komist á réttum tíma.

Enn sem komið er er þjónustan aðeins í boði vestahafs í Bandaríkjunum en það stendur til bóta og þar hjálpar að síðan Options Away hóf starfsemi hefur gengið afar vel og engar líkur á öðru en svo verði líka annars staðar í heiminum.

Nánar hér.