Ritstjórn hefur nokkrum sinnum flogið með verðlaunaflugfélaginu Qatar Airways og ávallt notið vel enda um fimm stjörnu þjónustu að ræða og það á öllum farrýmum. En sífellt fleiri sögum fer af dapurlegum aðstæðum starfsmanna flugfélagsins.

Bros sem sennilega ristir ekki djúpt ef marka má þann aðbúnað sem starfsfólk Qatar þarf að búa við. Mynd Brussel Airport
Saga tveggja sænskra stúlkna sem hjá flugfélaginu hafa starfað og var umfjöllunarefni sænska dagblaðsins Expressen fyrir skömmu hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli. Óhætt er að segja að stúlkurnar segi farir sínar ekki sléttar í starfinu enda var aginn yfirgnæfandi og ein einasta yfirsjón nægði til að fá sparkið með engum fyrirvara og útskýringarlaust.
Það er ekki hugmyndin að kryfja grein Expressen í þaula enda sögurnar svipaðar og hafa komið upp á yfirborðið annars staðar. En sjálfsagt er að tipla á því helsta.
Vinnutíminn er langur og strangt eftirlit haft með starfsfólkinu milli flugtíma og ekki síður í frítíma. Starfsfólki er meinað að hittast á ákveðnum tíma og þarf reyndar að vera komið í herbergi sín innan ákveðins tíma öll kvöld alltaf. Starfsfólk má ekki eiga rómantískar stundir saman og ekki stunda kynlíf saman. Viðurlögin við slíku er brottrekstur úr starfi, fangelsi í tvo til þrjá daga fyrir báða aðila og landvistarleyfi í Qatar dregið til baka. Starfsfólk sem í slíku lendir fær ekki einu sinni að ná í farangur sinn áður en því er hent úr landi.
Forstjórinn þykir afturhaldsseggur dauðans. Fullyrt er að hann hafi gegnum tíðina sjálfur sannreynt þjónustulund ákveðinna kvenstarfsmanna sinna. Hann rekur starfsfólk viðstöðulaust og ber litla virðingu fyrir fólki. Hann er sagður hafa rekið flugþjóna umsvifalaust sem hann taldi vera of feita.
Starfsfólk Qatar má undir engum kringumstæðum skrifa opinberlega um fyrirtækið. Engum er heimilt að tala um fyrirtækið og samning þess efnis skal fólk skrifa undir áður en störf hefjast.
Nánar um málið í Expressen hér.







