Það er líklega skeifusvipur á öllum þeim sem þessa dagana hugsa sér gott til glóðarinnar að dvelja nokkrar vikur á Spáni og leigja sér sumarhús, villu eða íbúð.

Það er vissulega ljúft að leigja sér villu í sumarfríinu en margir koma nú að tómum kofa hjá villuleigum.
Sumir kjósa slíkt til að spara peninga, aðrir geta ekki hugsað sér að dvelja á hótelum og til eru þeir sem ferðast með stórfjölskyldur eða vinahópa sem best væri að hafa undir einu þaki. Skeifusvipurinn er væntanlega tilkominn sökum þess að þær villur og hús sem til leigu gegnum Íslendinga eru frá maí og fram í september að langmestu leyti fullbókuð í Alicante héraðinu.
En það er engin þörf að örvænta heldur þvert á móti. Nóg er til af lausum eignum til leigu í Alicante, Torrevieja, Orihuela, Cabo Roig, Benidorm, Denia eða annars staðar þar sem gott er að setja sig niður heitustu mánuðina.
Það hins vegar getur kostað að þurfa að eiga við spænska aðila, þýska, enska eða sænska sem margir leigja út íbúðir og hús hér um slóðir. Einhverra hluta vegna líst mörgum Íslendingum illa á slíkt fyrirkomulag. Eins og Íslendingar sjálfir séu alfarið saklausir af prettum og klækjum gegnum tíðina.
Við hjá Fararheill höfum reynslu af því að leigja hús víða um Spán og notað þar ýmsar leiðir og alfarið áfallalaust. Við skulum gjarnan aðstoða að finna og leigja hentuga íbúð eða villu ef þið eruð að leita og eruð í öngstræti. Óhrædd að senda okkur skeyti á fararheill@fararheill.is







