Þó það eigi að heita samkeppni á flugleiðinni milli Keflavíkur og Manchester í Englandi er það ekki raunin samkvæmt verðúttekt Fararheill.

Samkeppni í nafni en ekki á borði til Manchester í sumar

Samkeppni í nafni en ekki á borði til Manchester í sumar

Þar sópar lággjaldaflugfélagið easyJet hinu innlenda Icelandair út af borðinu alla þrjá sumarmánuðina og fer létt með eins og sjá má á meðfylgjandi töflu.

Hér skiptir vitaskuld máli að easyJet skiptir farrýmum sínum ekki niður eins og Icelandair sem hækkar verð umtalsvert um leið og fótapláss eykst og þjónustu batnar. Þá er Icelandair einhverra hluta vegna að auglýsa flug til Manchester með millilendingu í London og svo áfram til baka til Manchester með British Airways. Þær ferðir vitaskuld dýrari.

Óskiljanlegt hvers vegna þessi háttur er hafður á leiti fólk að flugi til Manchester. Við leit kemur ekkert fram hvaða ferðir eru beint flug og hvaða ferðir eru í raun til London fyrr en farið er áleiðis inn í bókun. Með sama hætti gæti Icelandair auglýst ferðir til allra staða á jarðkringlunni. Kjánalegt í meira lagi enda enginn heilvita maður að fljúga til London og svo til baka til Manchester og allra síst með hinu almennt fokdýra British Airways.

En þar sem Icelandair auglýsir þessi fargjöld til Manchester þá tökum við þau með í útreikninga okkar. Þeir sýna svart á hvítu að himinn og haf er milli fargjalds AÐRA LEIÐ frá Keflavík til Manchester samkvæmt úttekt klukkan 11 þann 25. mars 2014. Um er að ræða meðaltal allra fargjalda alla mánuðina en allra lægsta fargjald Icelandair fer niður í tæplega 20 þúsund krónur og allra lægsta fargjald easyJet kringum ellefu þúsund krónur þessa mánuði.

* Hafa skal í huga að verð breytast hratt. Fargjöld easyJet umreiknuð í krónur miðað við miðgengi dagsins og kreditkortagjöld og ein taska með í för eins og boðið er hjá Icelandair. Samanburðurinn er því eins sanngjarn og framast er unnt.