Lengi má deila um hvað telst vera gott verð og hvað ekki og fer vitaskuld eftir tekjum og eignum viðkomandi. En við teljum að rétt rúmar tvö hundruð þúsund krónur fyrir tveggja vikna dvöl með öllu á einhverjum bestu ströndum heims við Rauðahafið yfir páskahátíðina sé með því betra sem gerist.
Nokkuð hefur verið í fréttum sú staðreynd að í þúsundasta árið í röð eru skipulagðar páskaferðir fyrir löngu uppseldar. Engum blaðamanni dettur í hug að spyrja út í hið augljósa í þessum tilfellum: hvers vegna ekki er bætt við ferðum ef þær seljast upp ár eftir ár með margra mánaða fyrirvara? Kallast það ekki góð þjónusta og að koma til móts við viðskiptavini?
Það er þó einnig beinlínis rangt að páskaferðir séu uppseldar því þótt þær hafi klárast hjá innlendum ferðaaðilum er leikur einn að drífa sig út á eigin spýtur um páskana.
Ein æði ljúf páskaferð er nú á tilboði með bresku ferðaskrifstofunni Qwerty Travel en þar er um að ræða tveggja vikna túr til Sharm el Sheikh við Rauðahafið á fjögurra stjörnu hóteli með öllu inniföldu fyrir aðeins 160 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Allt innifalinn páskalúxuspakki á 80 þúsund krónur vikan er töluvert betra en þau tilboð sem innlendu ferðaskrifstofurnar hafa verið að bjóða. Þvert á móti leggja þær aukalega ofan á páskaferðir.
Reyndar þarf til að komast í ferð Qwerty að gera sér ferð til Manchester þaðan sem flogið er en það er lítið mál. Þangað fljúga bæði Icelandair og easyJet og sæti enn í boði kringum réttar dagsetningar þegar þetta er skrifað. En reyndar þarf að greiða 50 til 60 þúsund krónur fyrir. Það bætist því við og ferðakostnaðurinn því rúmar 200 þúsund krónur alls á mann.
Sem er samt dágott miðað við ýmsar ferðir aðila á borð við Úrval Útsýn hvers vikuferð til Madeira á sæmilegu hóteli með hálfu fæði skjagar langleiðina upp í 200 þúsund króna kostnað á mann.
Nánar um ferð Qwerty hér og aðrar tilboðsferðir þeirra og allt um Sharm el Sheikh hér en þar er nú þegar 25 stiga hiti.








