Góðu heilli eru ekki allir á farsæla Fróni sem láta aftur og ítrekað bjóða sér hvað sem er. Það sannast dálítið skemmtilega á fésbókarauglýsingu Primera Air þar sem flugfélagið auglýsir sumarútsölu á ferðum sínum.

Látum liggja milli hluta að sama auglýsingin hefur nú gengið í rúman mánuð að minnsta kosti og þar sem Primera Air er lággjaldaflugfélag hækka fargjöld þeirra jafnt og þétt eftir því sem fleiri bóka miða. Með öðrum orðum; verð á flugi með Primera Air frá Íslandi núna er hreint ekki eins lágt og það var þegar þessi sama auglýsing birtist fyrst fyrir rúmum mánuði.

Enn daprari sú staðreynd að hvergi finnst neitt „sumartilboð“ á vef Primera Air. Við finnum „vortilboð“ en varla er þaulmenntað auglýsingalið Primera að ruglast á vori og sumari. Eða kannski það. Kannski hefur auglýsingadeildinni líka verið úthýst til Litháen.

Nóg um það. Hið jákvæða við auglýsingu Primera Air er hve margir lýsa algjöru frati á „sumarútsöluna.“ Sífellt fleiri Íslendingar geyma ekki hausinn í sandinum og vita sem er að gjörðir Primera Air síðustu misserin hafa nú ekki verið upp á marga fiska.

TILBOÐ Á TILBOÐ OFAN HJÁ PRIMERA AIR EN EKKI TIL OKKAR

SVONA MIKILL VIÐBJÓÐUR ER PRIMERA AIR ANDRA MÁS INGÓLFSSONAR

HJÁ PRIMERA AIR LJÚGA MENN EINS OG ÞEIR ERU LANGIR TIL

VÍÐA LEKUR SAURINN FRÁ PRIMERA AIR

LÍTILL 400% VERÐMUNUR Á LÆGSTA OG HÆSTA FARGJALDI PRIMERA AIR AÐRA LEIÐ TIL TENERIFE

PRIMERA AIR ENN EKKI GREITT EYRI Í SKAÐABÆTUR TIL FARÞEGA SINNA

Og svo framvegis og svo framvegis…