Höfum einu sinni hitt herra Mogensen, eiganda Wow Air, og vel fór á. Gaurinn flottur og skemmtilegur. En sjarminn virðist ekki ná til viðskiptavina hans. Lögreglan er send beint á alla ósátta farþega flugfélags kappans.
Spurning hvort ríkið eigi að rukka Wow Air sérstaklega fyrir aðstoð lögreglu. Hún er kölluð til æði oft þegar viðskiptavinir Wow Air eru ósáttir við vesen og aukagjöld. Og sjálfur geymdi forstjórinn milljarða sína á aflandseyjum til að greiða sem minnsta skatta og fékk svo 40 prósenta bónus hjá Seðlabanka Íslands þegar hann tók hluta skattfrjálsu peninganna til Íslands á sínum tíma. Hann fékk sem sagt 150 milljónir gefins fyrir að henda brotabroti af skattfrjálsum peningum sínum heim á klakann.
En að einhver viðskiptavinur hans dirfist að halda um borð með handfarangur sem ekki passar 100 prósent! Það er lögreglumál.
Ekki furða að Wow Air er LÉLEGASTA LÁGGJALDAFLUGFÉLAG sem flýgur til og frá Íslandi…







