Fátt virðist skemmtilegra fyrir þá einstaklinga sem komist hafa í feitar álnir með því að selja okkur hér á klakanum vörur og þjónustu á okurverði en að setja nú oggupons salt í sárin í þokkabót svona að gamni sínu. Það á til dæmis við um fyrrum viðskiptamann ársins, Andra Má Ingólfsson eiganda Primera Air.

Tonn af flottum tilboðum í sólina í vor og sumar hjá Primera Air. Þó ekki fyrir Íslendinga. Skjáskot
Andri Már fékk ferðaskrifstofuna Heimsferðir í arf frá pápa gamla á sínum tíma og datt síðar í hug að koma á fót flugfélagi til að þurfa ekki að borga fúlgur fyrir okur hjá milliliðum. Góð hugmynd en Andri tók þetta aðeins of langt. Hann sá fljótt að hann gæti sjálfur okrað á farþegum með sínu eigin flugfélagi. Til varð Primera Air.
Skömmu síðar áttaði Andri sig á að fólk í löndum við Eystrasalt vinnur á lúsarlaunum og hann flutti starfsemi flugfélagsins umsvifalaust til Lettlands. Ekki aðeins eru meðallaun í Lettlandi um 120 þúsund íslenskar krónur heldur og er þar hægur vandi að múta mönnum. Til dæmis sjálfum seðlabankastjóra landsins.
Hraðspólum til dagsins í dag. Kíkjum á nokkur eðalfín vortilboð Primera Air til áhugasamra:
Flug aðra leið til Mallorca á 4.900 krónur. Flug aðra leið til Tenerife niður í 6.700 krónur. Flug aðra leið til Krítar fyrir 8.600 krónur. Flug aðra leið til Las Palmas á Kanarí lægst á 7.200 krónur.
Hólímólí!!! Þetta er afskaplega vel boðið ekki satt. Sól og sæla á klink og ingenting. Svona á lífið að vera 🙂

Viðskiptamógúllinn sjálfur. Allir nema Íslendingar njóta súperkjara á flugi. Skjáskot
Alas, bíddu með að opna kampavínið og senda börnin ofan í kjallara að blása í þúsund blöðrur. Ástæðan sú að ofangreind tilboð Primera Air gilda fyrir Svía, Dani, Finna og Norðmenn. Sömu Íslendingar og komu fótum undir þetta batterí hans Andra Más mega sætta sig við öllu minna merkileg flugfargjöld:
Önnur leiðin til Mallorca á 22.999 krónur. Túr aðra leiðina til Cádiz á Spáni kostar aðeins 29.999. Og ekki skemmir önnur leiðin til Fuerteventura á 19.999 krónur.
Sjáið þið það sama og við hér hjá Fararheill? Er ekki dálítið óhugnarlegur verðmunur á ódýrasta flugi með Primera Air frá Íslandi annars vegar og öðrum Norðurlöndum?
Nú kann einhver mótbáruelskandi að benda á að það sé nú ekki sama vegalengd til Kanarí til dæmis frá Stokkhólmi og frá Keflavík. Eðlilegt geti verið að flug sé miklu ódýrara sökum þess að flugið er mun styttra.
Víst er það að flug er mislangt. Það tekur til dæmis klukkustund lengur að fljúga frá Stokkhólmi til Kanaríeyja en frá Keflavík. Fargjaldið ætti að vera töluvert lægra frá Íslandi en Svíþjóð. En er ekki.
Þess utan finnast engar „vortilboðs“ auglýsingar á íslenskum vef Primera Air. En það eru vortilboð í boði fyrir Dani og Svía þegar þetta er skrifað. Flug til Malaga niður í fimm þúsund kall frá Köben. Frá Keflavík er lægsta verð aðra leið til Malaga á 19.999 krónur.
Eðlilegt? Alls ekki. Hér er Andri Már að reyna að kroppa Íslendinginn inn að beini meðan hann brosir sínu breiðasta til Dana, Svía, Finna og Norðmanna.
Með öðrum orðum hreinn viðbjóður. Er svo vitlaust að láta af öllum viðskiptum við Primera Air og Heimsferðir og neita að láta hafa okkur að fíflum…







