Sjö þúsund átta hundruð og sautján krónur. Það er lægsta verð á flugi aðra leiðina til Madríd á Spáni næsta sumarið ef þú bókar gegnum Iberia Express næstu sólarhringana.

Einhvern tíma langað til Madríd án þess að setja það á raðgreiðslur?
Þá er tækifærið núna. Skjáskot

Lesendur mega gjarnan láta okkur vita ef þeir hafa heyrt um lægri fargjöld frá Íslandinu góða alla leið til Spánar. Við munum ekki eftir slíku en það heldur ekki á hverjum degi sem lággjaldaflugfélag býður allt að 35 prósent afslátt á fargjöldum. Það er einmitt það sem Iberia Express er að bjóða þessa sólarhringana og gilda afsláttarkjör um nánast allt flug flugfélagsins allt árið.

Einn lítill hængur er þó á þessu ágæta tilboði spænsk/enska flugfélagsins Iberia Express. Hann sá að áhugasamir þurfa að skrá sig í sérstakan félagaklúbb flugfélagsins til að njóta afsláttarkjara. Ekkert vandamál þar enda kostar það ekki neitt.

Svo gætir þú líka bókað hjá Icelandair til Madríd. Nema kannski að lægsta verð aðra leiðina út með þeim í sumar kostar 18.155 krónur á sardínufarrými án alls. Þú kemst sem sagt fram og aftur með Iberia Express á svipuðu verði og önnur leiðin með Icelandair.

Allt um Madríd hér og hér finnurðu bókunarvél Iberia Express.

Buen viaje 🙂