Ahhhhh. Hvað er Mallorca í júlí annað en dásemd á dásemd ofan. Hitastigið 30 plús en alveg príma þökk sé ferskum andvara af hafi alls staðar á eynni, verðlag barasta djók og fáir staðir orðnir alveg gegnsýrðir af fjöldatúrisma með tilheyrandi leiðindum.

Strönd Alcudia á norðurhluta Mallorca. Mynd Christian Bortes
Það er alltaf plúsinn við að vera stödd á eyju þegar sól rís sem hæst að sjaldan missir fólk þrótt og fjör út af hitanum. Alltaf blæs lítillega einhver staðar að og á eyjum þýðir það undantekningarlaust ferskan vind af hafi sem kælir líkama og geð með. Það er því algjör hending ef einhvern tímann verður of heitt á stöðum eins og Mallorca jafnvel þó hitamælirinn sé á fullu stími.
Stöku ferðaþjónustuaðilar hérlendis bjóða pakkaferðir til Mallorca þessa vertíðina og er það vel. Þó sá hængur á að það yfirleitt ekki alveg gefins.
En ef þú ert týpan sem fílar að gera og græja þitt eigið ferðalag má enn finna nætur á fjögurra stjörnu hótelum Mallorca á háannatíma í júlí niður í fjórtán þúsund krónur á hótelbókunarvef Fararheill.




Og þú ert að bíða eftir hverju 😉







