Þrátt fyrir að hafa verið dæmt til að greiða skaðabætur til farþega sinna hjá tveimur stofnunum hérlendis bólar ekkert á greiðslum frá Primera Air. Þrír mánuðir eru þó liðnir síðan lokaniðurstaða komst í málið.

Heilt ár af þrefi og stressi tók farþega Primera Air að fá sínu fram gegn fyrirtækinu. En ekkert hefur fyrirtækið greitt ennþá.

Heilt ár af þrefi og stressi tók farþega Primera Air að fá sínu fram gegn fyrirtækinu. En ekkert hefur fyrirtækið greitt ennþá.

Enginn þeirra farþega Primera Air sem voru sólarhring á leiðinni frá Tenerife heim til Íslands í ágúst 2015 hefur enn fengið tilskyldar bætur eftir því sem Fararheill kemst næst. Tæplega hundrað aðilar fóru fram á bætur vegna flugsins og hafa bæði Samgöngustofa og innanríkisráðuneytið staðfest skaðabótaskyldu flugfélagsins.

Þrátt fyrir að farþegarnir sem um ræðir hafi fengið, eftir langt þref, loforð um greiðslu bóta eftir fjórar til sjö vikur hefur engin greiðsla borist enn. Rúmar tólf vikur eru frá því að innanríkisráðuneytið dæmdi flugfélagið bótaskylt.

Það virðist því fátt að marka sem frá flugfélaginu kemur og ágætt að hafa það bak eyra næst þegar Primera Air auglýsir góða þjónustu.