Það hefur ekki alltaf verið mögulegt að fljúga beint frá Íslandi til Kanaríeyja yfir sumartímann en næsta sumar ætla tveir aðilar að bjóða þann möguleika. En hvor þeirra er að bjóða lægra verð?

Kanaríeyjar eru dásamlegar yfir hásumarið því þar verður hitastig aldrei yfirgnæfandi hræðilegt. Mynd Jose Angel

Kanaríeyjar eru dásamlegar yfir hásumarið því þar verður hitastig aldrei yfirgnæfandi hræðilegt. Mynd Jose Angel

Úttekt Fararheill á fargjöldum fram og aftur til Tenerife í beinu flugi með Wow Air og Primera Air leiðir í ljós að hið fyrrnefnda er að bjóða betur þegar þetta er skrifað en að frátöldum ágústmánuði er munurinn lítill.

Fyrir þá fjölmörgu einstaklinga sem illa þola mikla hita eru Kanaríeyjur eiginlega frábærar yfir sumartímann. Meðalhitastið á Tenerife í júlí er ekki nema 21 gráða en til samanburðar er meðalhitastig 25 gráður í Malaga og 28 gráður í Sevilla. Munurinn felst í því að í Sevilla er næstum of heitt til að anda meðan fersk sjávargolan við Kanaríeyjar heldur öllum í góðum gír.

Við leituðum að fargjaldi fram og aftur í hverjum sumarmánuði fyrir sig. Stundum náðist lægsta verð aðeins í vikuferð meðan ódýrast var í öðrum tilfellum að vera tvær vikur. Heilt yfir var þó lítill munur á fargjöldum og það er aðeins seinnihluta ágústmánaðar sem Wow Air tekst að bjóða verulega betur en Primera Air. Þó með þeim formerkjum að „aðeins tvö til þrjú sæti“ eru eftir á lægsta verði á mörgum dagsetningum. Af því má ráða að þegar nær dregur og ódýrum sætum fækkar verði verð á flugi til og frá keimlíkt.

* Úttekt gerð kl. 15 þann tólfta janúar 2015. Leitað samtímis hjá báðum aðilum og einni 20 kg tösku bætt við fargjöld Wow. Ein slík er innifalin hjá Primera Air. Báðar leiðir fyrir einn einstakling.