Tíðindi

Standast illa verðsamanburð við easyJet

  09/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Þær staðfestu fregnir að breska lágfargjaldaflugfélagið easyJet hyggist hefja flug til Íslands í mars næstkomandi eru afar góðar fréttir fyrir íslenska neytendur.

Nægir að sjá svör við vefkönnunum Fararheill til að sjá að stór meirihluti svarenda telur að fákeppni sé í flugbransanum á Fróni. Það staðfestir einnig nýleg ritgerð tveggja viðskiptafræðinema við Háskólann í Reykjavík eins og Fararheill greindi frá fyrir nokkru.

easyJet hefur tilkynnt að flogið verði til og frá Íslandi á þriðju-, fimmtu-, og sunnudögum og að lágmarks fargjald aðra leið verði 6.085 krónur miðað við gengi dagsins í dag. Að því gefnu skoðaði Fararheill fargjöld Iceland Express og Icelandair til London fimmtudaginn 29. mars. Ódýrasta fargjald Iceland Express aðra leið út þann dag kostar 23.330 og ódýrasta fargjald Icelandair 18.180 krónur. Ekki er tekið tillit til annars en verðlags.

Með tilliti til þessa fannst ritstjórn þjóðráð að gera samanburð að aukagjöldum easyJet, Icelandair og Iceland Express og mun bæta Wow Air í þann hóp þegar það flugfélag skýrir frá áfangastöðum sínum og tíðni ferða.

Það er nefninlega svo að easyJet hleður töluvert á upphaflegt fargjald sitt sé þess kostur. Sem dæmi verða þeir sem ætla sér að sitja í ákveðnu sæti að kaupa svokallað speedy boarding, eða flýtiinnritun, í vélar þeirra. Það getur kostað frá 450 krónum og upp í 1.400 krónur fyrir hvern einstakling og bætist þá við fargjaldið.