Ritstjórn Fararheill.is hefur um langt skeið haldið því fram að fákeppni ríki á íslenska flug- og ferðamarkaðnum þó vitaskuld haldi hagsmunaaðilar öðru fram. Sú skoðun hefur hingað til þó byggt meira á tilfinningu en beinum útreikningi en nú sýnir ritgerð tveggja einstaklinga í Háskólanum í Reykjavík að tilfinning ritstjórnar er á rökum reist.
Tveir einstaklingar í viðskiptafræðinámi við Háskólann í Reykjavík, Gestur Ingi Harðarson og Pétur Viðarsson, hafa nú kortlagt íslenska flugmarkaðinn og það með nokkrum mismunandi fræðilegum leiðum og hafa birt ritgerð sína þar sem staðfest er að fákeppni er staðreynd.
Í ritgerð sinni, Fákeppni á markaði íslensks millilandaflugs; orsakir og afleiðing, fóru þeir félagar grundigt yfir verðlagningu Icelandair og Iceland Express yfirstandandi ár eftir því sem hægt var því upplýsingar voru ekki fáanlegar frá flugfélögunum sjálfum að öllu leyti. Þá var samanburður gerður erfiðari þar sem flugfélögin tvö fljúga ekki að öllu leyti til sömu áfangastaða.
Framkvæmdu þeir félagar verðsamanburð milli flugfélaganna tveggja á öllum mörkuðum sem flogið er til á fjórum mismunandi tímaskeiðum með þremur mismunandi leiðum. Notuðu þeir til þess svokallaða Lerner vísitölu, HHI stuðul og Cournout líkan.
Lerner vísitalan metur markaðsstyrk fyrirtækja og mælir hvernig teygni eftirspurnar hefur áhrif á verðmyndun á einokunar- eða fákeppnismarkaði.
Eftir útreikninga stendur sú vísitala milli 0 og 1 þar sem 0 þýðir fullkomin samkeppni og 1 nánast hrein einokun. Meðaltal Icelandair við þá útreikninga varð 0,68 á háannatíma í júlí í sumar en 0,62 hjá Iceland Express á sama tíma yfir alla áfangastaði hjá báðum flugfélögum.
Þegar aðeins var litið til sömu vísitölu yfir þá staði sem bæði flugfélög flugu til var staðan eins og á meðfylgjandi töflu.






