Meðan íbúar í Svíþjóð og Noregi fá nú þegar tugþúsunda afslátt af sumarleyfisferðum næsta árs hjá þarlendum ferðaskrifstofum fá íslenskir neytendur engar upplýsingar um áfangastaði eða prísa hjá íslenskum ferðaskrifstofum. Engin þeirra hefur enn birt áætlun næsta árs.
Forvitnaðist ritstjórn Fararheill.is hjá öllum íslensku ferðaskrifstofunum hvort nýir áfangastaðir væri í kortunum næsta vor og sumar. Ennfremur var óskað upplýsinga um verðlag; hvort ferðaskrifstofurnar sæju fram á hækkun eða lækkun á sumarleyfisferðunum okkar.
Skemmst er frá að segja að engin þeirra gefur upp nokkuð um áfangastaði eða hvort nýir áfangastaðir verða í boði næsta sumar. Þaðan af síður fengust upplýsingar um hugsanlegt verðlag næsta sumar.
Horfir öðruvísi við í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og reyndar mun víðar því ferðaskrifstofur þarlendar sitja ekki á slíkum upplýsingum og hjá þeim stærstu á Norðurlöndum er meira að segja liðinn sá frestur sem áhugasamir höfðu að tryggja sér sumarleyfisferð næsta árs með sérstökum afslætti ef bókað væri snemma.
Sé litið yfir skalann í nágrannalöndum virðast grísku eyjarnar heilla Norðmenn afar mikið og bjóða margar ferðaskrifstofur þar í landi upp á ferðir til einhverra þeirra eyja. Þá er Tyrkland áfram á vinsældarlistum hjá ferðaskrifstofum í Svíþjóð að frátöldum hefðbundnum ferðum til Spánar.
Vilji fólk fá innblástur fyrir næsta sumar er ráð að skoða þessar og jafnvel gera verðsamanburð:
- Star Tours Noregi
- Falk Lauritzen Danmörku
- Apollo Svíþjóð






