Tíðindi

Lengi lifi samkeppnin! easyJet til Íslands

  09/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Forsvarsmenn lágfargjaldaflugfélagsins easyJet hafa nú staðfesta að flogið verður til Íslands frá Englandi næsta vor og sumar en óstaðfestar fregnir þess efnis hafa flogið hérlendis að undanförnu.

easyJet var fyrr á árinu valið besta lágfargjaldaflugfélag Evrópu og getur ritstjórn Fararheill.is staðfest að þægindi, pláss og þjónusta er almennt meiri í vélum þess flugfélags en annarra slíkra ef spænska lágfargjaldaflugfélagið Vueling er undanskilið.

Samkvæmt tilkynningu frá easyJet hefjast áætlunarferðir þess strax í lok mars og fargjöld verða um og yfir sex þúsund krónur aðra leiðina sé mið tekið af gengi krónunnar þegar þetta er skrifað. Mun ódýrasta fargjaldið aðra leiðina kosta 32,99 pund, 6.085 krónur, og báðar leiðir að lágmarki 58,81 pund, 10.681 krónur.

Flogið verður til og frá Luton flugvelli sem er annar aðalflugvöllur easyJet í Bretlandi en er reyndar leiðinlegastur þeirra flugvalla sem eru í grennd við London. Í boði eru ferðir þrisvar sinnum í viku á þriðju,- fimmtu- og sunnudögum.