Tíðindi

Tuttugu þúsund kall til Kanarí

  08/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Áhugasamir geta nú flúið land alla leið til Kanaríeyja fyrir 19.900 krónur sé farið þann 15. nóvember næstkomandi en ferðaskrifstofan Heimsferðir auglýsir nú flugsæti til Las Palmas, höfuðborgar Gran Canaria, fyrir þetta verð á vef sínum.

Verður það að teljast með allra hagstæðustu prísum sem fást og það alla leið til Kanaríeyja þar sem sólin er enn að kyssa vanga heimamanna.

Í boði er einnig að dvelja aðeins viku og taka þá heimflug gegnum Kaupmannahöfn en bakaflugið er þó dýrara, 29.900, þannig að ferðin kostar þá tæpar 50 þúsund án gistingar. Engu að síður er sá prís lægri en gengur og gerist með hefðbundin áætlunarflug flugfélaganna til Spánar.

Sömuleiðis er ferðaskrifstofan með tilboð sama dag í tólf nátta ferð þar sem gist verður á Maspalomas ströndinni á Maspalomas Lago hótelinu á Gran Canaria.

Prísinn á þeirri ferð góður eða 114.900 á mann miðað við tvo saman. Það hótel þykir skítsæmilegt og er númer 47 af 70 hótelum alls á Maspalomas svæðinu samkvæmt vef Tripadvisor.