Tíðindi

Fákeppni í flugi að mati meirihluta

  02/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Það ríkir sannarlega fákeppni í utanlandsflugi frá Íslandi að mati lesenda Fararheill sem þátt tóku í könnun þar að lútandi. Eru niðurstöðurnar á pari við niðurstöður tveggja háskólanema sem sýndi að fákeppni ríkti á flugi frá landinu og það samkvæmt vísindalegum mælingum eins og við greindum frá fyrir skömmu.

Í kjölfar þess vildi ritstjórn vita hvort lesendur hefðu á þessu skoðun. Í ljós kemur að 65 prósent af 318 aðilum er þátt tóku telja ekki ríkja samkeppni í utanlandsfluginu. 35 prósent telja hins vegar að svo sé.

Gangi allt að óskum má þó telja að vænlegri tíð bíði þeirra sem telja að fákeppni ríki því þótt vissulega fljúgi fleiri aðilar til og frá landinu en Icelandair og Iceland Express eru ferðir þeirra aðila fyrst og fremst í boði yfir sumartímann.

Þetta breytist næsta vor ef allt gengur því þá hefur flugfélagið Wow áætlunarferðir í samkeppni við hina tvo og einnig hefur Primera Air tilkynnt um flug til og frá landinu næsta sumar.

Ekki er heldur útilokað að fleiri flugfélög taki slaginn og þar á meðal hefur verið nefnt að easyJet hyggi á landvinninga hérlendis þó ekki hafi það fengist staðfest.