Ferðasalinn Iceland Express hyggst fækka til muna áfangastöðum sínum næsta vor og sumar en þetta árið hafa viðskiptavinir þess getað valið milli 24 mismunandi áfangastaða. Þeir verða aðeins sextán á næsta ári.
Hefur ferðasalinn loks birt áætlun sína fyrir næsta ár en sú áætlun tafðist sökum forstjóraskipta hjá félaginu.
Hyggst Iceland Express hætta öllu flugi til Bandaríkjanna ef frá er taldar ferðir til New York frá og með áramótum. Þá verða fimmtán áfangastaðir í Evrópu í boði en engir nýir áfangastaðir umfram þá sem félagið hefur flogið til hingað til.
Greint er frá því í fjölmiðlum að flugfélagið hyggist verða sér úti um eigið flugrekstrarleyfi og kaupa sínar eigin þotur og það fyrir vorið en sem stendur brúkar Iceland Express þotur frá breska flugfélaginu Astreus. Þykir það hafa gefið misjafna raun og er Bretunum meðal annars kennt um hluta af óförum Iceland Express síðustu mánuði hvað varðar tafir og seinkanir.
Áfangastaðir IE á næsta ári eru því þessir: New York, London, Kaupmannahöfn, Bologna, Barcelona, Alicante, Osló, Billund, Gautaborg, Varsjá, Berlín, Frankfurt, Basel, París, Zurich og Edinborg.






