Þó seint verði hægt að kvarta verulega yfir veðurfarinu það sem af er hausti og vetri er grimmasti hluti vetrarins framundan og ekki allir fagna því af mikilli áfergju. Þeir hinir sömu gætu gert verri hluti en nýta sér vildarpunktatilboð American Express til Orlando.
Er í boði frá hádegi í dag og einn sólarhring flug báðar leiðir til Orlando á Flórída í Bandaríkjunum með Icelandair fyrir 30 þúsund vildarpunkta sem er helmingur þess sem venjulega þarf að punga út fyrir slíka ferð.
En tímasetningin gæti vart verið betri fyrir kulsækna handhafa slíkra korta því þær ferðir sem í boði eru nú eru í janúar og febrúar. Einmitt sömu mánuðir og á stundum fara mjög í skapið á Frónbúum. Er þá margt vitlausara en eyða hluta þess tíma í sól og yl í 25 gráðu hita.
Er reyndar sá galli á gjöf Njarðar að skattar og aðrar greiðslur eru ekki innifaldar í tilboðinu og þarf því að punga út 37.900 krónum að lágmarki í viðbót við punktana 30 þúsund. Sem þýðir í raun að ef 30 þúsund vildarpunktar eru 25 þúsund króna virði sem er nærri lagi er ferðin að fást ódýrust á rúmlega 60 þúsund í heildina. Er það tíu til fimmtán þúsund krónum ódýrara en ódýrustu hefðbundnu fargjöld Icelandair umræddan tíma.






