Á dauða sínum á maður stundum von en alls ekki að fyrirtæki auglýsi sig dýrar en það í raun og veru er. Sú staða er þó komin upp því samkvæmt úttekt Fararheill.is kemst einstaklingur aðra leiðina til Bretlands í ágúst á næsta ári fyrir 4.617 íslenskar krónur.

Til London aðra leið undir fimm þúsund krónum með easyJet.

Til London aðra leið undir fimm þúsund krónum með easyJet.

Fyrir utan að það verð sé stórkostlegt er það enn lægra verð en easyJet tilkynnti að yrði lægsta verð í boði aðra leið til eða frá Íslandi.

Átti allra lægsti prísinn samkvæmt tilkynningu að vera 32.99 pund, 6.149 krónur, en við leit finnast sæti frá Reykjavík til Luton aðra leiðina í ágúst og september á 4.617 krónur.

Hafa skal í huga að verð easyJet eru í evrum eða pundum á vef fyrirtækisins og að útreikningar nú taka mið að gengi krónunnar gagnvart þessum gjaldmiðlum á þessari stundu.

En taki nú krónan okkar upp á því að styrkjast lítið eitt eins og reyndar stöku fræðingar búast við munu fargjöld easyJet lækka sem því nemur.